Fjögur grá hár
Kísildalur og að Red-pilla sjálfan sig
Lóa skrifar - með nokkrum innskotum frá Kristjáni neðst
Byrjum þessa færslu á nokkrum skjáskotum úr samtímanum
Gervigreindarsmíðuð mynd sem birt var á twitter-reikningi Hvíta hússins í stíl Studio Ghibli, sem var meme vikunnar á X. Að taka allskonar myndir, myndir sem hafa verið viral, iconiskar fréttamyndir, skjáskot úr white lotus, etc og ghiblifya þær. Hvíta húsið lét sitt ekki eftir kyrrt liggja.
En myndin var kvót-retweet á fyrri færslu, ghiblifyuð fréttamynd af því þegar glæpamaður hafi verið handtekin og færð í varðhald.
Hér er t.d. marc andreessen, pmarca, kær vinur okkar og svefngaurinn don’t die gaurinn Bryan Johnson
Og svo græna skipulagsslysið í Breiðholti, Ghiblifyað
Skrýtinn raunveruleiki. Ekki hinar myndirnar, þær eru skemmtilegar, bara að Hvíta húsið setji deportation frétt í meme dagins.
Annar skrýtinn raunveruleiki. 23andMe, hvernig er best að útskýra það, DNA fyrirtæki sem að gefnu munnvatnssýni frá þér segir þér hvaðan þú ert og hverjir eru skyldir þér. Fóru á hausinn. En þá vilja þau selja gögnin. Sick!
Þessu tengt eða ótengt, aftur að þættinum.
Þessa dagana erum við að gera þættina Konungssinnar í Kísildal. Við erum að skoða hugmyndafræðina, pælingarnar á bakvið kísildalsgaurana sem eru í slagtogi við 47. Bandaríkjaforseta Donald Trump.
nýjasti kom í gær.
Ég reyndi að redpilla sjálfa mig
Eina leiðin til að gera svona seríu eða umfjöllun er að opna hug sinn upp á gátt fyrir hugmyndum sem maður hefur kannski ekki gefið nægilega mikinn gaum áður. Eins og t.d. Mises, austurískri hagfræði/anarkó-kapítalisma - pælingum. nú eða þegar kemur að Curtis Yarvin, viðfangsefni 2. þáttar, hugmyndinni um óumflýjanleg endalok lýðræðisins og konungsveldi sem lógískt næsta skref.
m.ö.o ég er búin að vera að reyna að redpilla sjálfa mig.
ég er búin að sitja samviskusöm og lesa og hlusta, hlusta á pælingar (SHOUT OUT LEX FRIDMAN OG BARI WEISS) og framtíðarsýn þessara manna og reyna að finna hvað meikar sens, hvað er gott, hvað er mikilvægt í þessum pælingum. ég er ekki bara búin að vera að glósa hjá mér hluti til að segja í þættinum heldur líka bara fara yfir mína eigin afstöðu, efast um mínar skoðanir eða skoðanir fólks í kringum mig. ég er búin að reyna að fara í tilvistarkreppu og nokkrum sinnum verið ansi nærri því að gleypa rauðu pilluna. svona verður þetta, þetta er framtíðin, við erum bara nokkrum skrefum á eftir, framtíðin er einhver samsuða af þjóðernispopúlisma og tæknilibertarianisma, lýðræði er búið, af hverju að streytast á móti, etc
síðan þessi sería hófst fann ég 4 grá hár á mínu höfði. Mín allra fyrstu. ég kalla þau Curtis Yarvin, Marc Andreessen, Peter Thiel og Balaji Srinivasan.
Og ekki er öll von úti enn, ég á eftir að gera tvo þætti a.m.k. og hver veit nema mér takist að redpilla mig á þeim. Já. eða bara blackpilla. Eða clearpilla amk.
techno-optimist manifesto era
að gagnrýna eitthvað sem tengist vísindum/tækni/viðskiptum/nýjungum getur látið mann virka í augum optimistana, eins og lúddíta / doomer / eða það sem verra er, eins og maður viti ekki hvað maður er að tala um.
Það er ekki gott. Og enn fremur þarf að efast vel um það ef maður kynnir sér málið og kemst að þeirri niðurstöðu að hugmyndir einhverra kísildalsprinsa séu frekar ögrandi, frekar out there. Ef niðurstöðurnar eftir að hafa kynnt sér málið staðfesta skoðanir sem maður hafði fyrir þá þarf kannski bara að grafa betur og meira.
Við fengum nokkrar athugasemdir við tiktok sem við gerðum þar sem ég sagði að hugmyndir þessara manna væru meira gagagúgú en þú héldir. Það þótti ekki samræmast hlutleysiskröfum sem gerðar eru til rúv.
En on the other hand þá líður mér stundum eins og við séum að reyna að fjalla hlutlaust um Sauron. Vinur minn sagðist heyra það á fyrsta þætti að ég kynni illa við Peter Thiel. Ég gerði mitt besta til að taka mark á Thiel en eftir að hafa skoðað þau gögn sem eru fyrir hendi gat ég dregið þá ályktun að hann sé ekki með sál. Það er ekki pólitísk skoðun eða agenda sem ég er með blaðamaður heldur er það mitt álit sem manneskja. Sauron týpa þarna á ferðinni.
Ríkasti maður í heimi, I am become Meme-Elon Musk, er í þessum töluðu orðum að reyna að tæta í sundur stofnanir bandaríkjana. hola þær að innan. og þá á maður og verður maður að velta því fyrir sér hvort það sé ekki mögulega eitthvað sem meiki sens. sem ég hef gert, eins og ég skrifaði áðan, þá er ég að reyna að redpilla sjálfa mig.
en ég er ekki með neina skoðun samt, ég er blaðamaður
ég lofa!
Hver einasta upptaka á þætti er búið að vera tvennt í senn: algjörlega tæmandi og algjörlega óklárað topic. Við löbbum út úr hverjum einustu upptökum og ræðum það sem komst ekki að, við gleymdum að segja, hvað hefði verið góður moli og hvað var gjörsamlega lykilatriði. En það er mín von innst inni að þættirnir séu kannski ekki fullkláruð mynd en kannski teiknast upp einhverjar útlínur, kannski valdeflir þetta fólk til þess að skilja, mynda sér skoðun og fylgjast með því sem er í gangi í bandaríkjunum. Það er auðveldara að manipúlera mann ef maður skilur ekki hvað er í gangi. Þá kannski kaupir maður bara $LESTIN coin fyrir allt spariféiið og situr eftir með sárt ennið eftir enn eitt pump and dump crypto schemeið.
En…
ég ætla að rétta samstarfsmanni mínum míkrafóninn, okkur langaði að fá að koma áðurnefndum ósögðum þáttamolum að á þessum vettvangi. Þetta er Kísildalur: deleted scenes.
Kristján í Kísildal
Eitt sem við höfum ekki náð að ræða um eru tengsl tækni-frjálshyggjunnar og drauma um lengri líftíma eða jafnvel eilíft líf einstaklingsins, longevity research. Peter Thiel hefur fjárfest mikið í slíkum rannsóknum (og ætlar að láta frysta sig þegar hann deyr), Balaji Srinivasan vinnur náið með Bryan Johnson - manninum sem ætlar ekki að deyja og Netflix gerði heimildarmynd um. Fyrir áhugafólk um þetta bá benda á góða útvarpsþætti frá BBC, The Immortals.
Einn lítill moli sem ég komst að er að Marc Andreessen er tengdasonur fasteignajöfursins John Arrillaga sem var einn af þeim sem bjó í rauninni til Silicon Valley - keypti gríðarlegt mikið landbúnaðarland og breytti í húsnæði sem hentaði nýjum tæknifyrirtækjum á sjöunda áratugnum.
❤️
Þó við höfum talað um Trumpcoinið í síðasta þætti þá gleymdum við alveg að minnast á rafmynta-fyrirtæki Trump-fjölskyldunnar World Liberty Financial - Heimsfrelsisfjármál. Á fyrra kjörtímabili sínu lagði Trump sig fram við að láta líta út fyrir að hann stigi til hliðar í hinum ýmsu fyrirtækjum sínum - en núna er hann ekki einu sinni að reyna.
$TRUMP
Talandi um rafmyntir þá ætluðum við að ræða um mið-ameríkuríkinð El Salvador í sjötta þættinum. Nayib Bukele, forseti landsins - sem kallar sig “heimsins svalasta harðstjóra” - er mikill áhugamaður um Bitcoin og varð rafmyntin að opinberum gjaldmiðli í landinu (ásamt dollar) árið 2021. (Nýlega þurfti hann reyndar að breyta þessu til að fá lán frá alþjóðagjaldeyrissjóðnum.) Bukele er núna að nudda sér upp við Trump-stjórnina og hefur boðið Bandaríkjamönnum að senda flóttamenn og jafnvel bandaríska fanga í nýleg öryggisfangelsi sín, 40 þúsund manna einangrunarbúðir.









